Jonni og Bogga í France
13.12.2006 22:52:26 / Jonni

ný síða

 Hæ hæ allir. Vildum láta vita af nýrri síðu á Barnalandi hjá litla nafnlausa drengnum. http://barnaland.is/barn/54609/ hann er á barnalandi undir "stúfur Jónatansson" þangað til að hann fær nafn. Allir sem að vilja skoða prinsinn geta farið inn á síðuna, . Þeir sem ekki vita aðgangsorðið en vilja fylgjast með, endilega sendið okkur póst og við sendum ykkur aðgangsorðið.

Litli maðurinn fær svo nafn laugardaginn 30.des.

Annars þá reiknum við ekki með að skrifa meira á þessa síðu fyrr en að Jonni fer út aftur.  Á flug 3. jan. Bogga og stúfur, ætla að vera eftir á Íslandi fyrst um sinn, en munu svo fara út þegar aðeins lengra líður á ævi nýja mannsins.

segjum þetta gott í bili. 3 amigos


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 19:59:54 / Jonni

Loksins nýjar myndir

Jæja þá eru loksins komnar nýjar myndir af prinsinum undir fyrsta vikan. Nettengingin hér í sveitinni er ekki sú hraðasta þannig að þetta drógst aðeins á langinn.

Njótið vel

Kveðja Jonni, Bogga og stubbur


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 13:31:37 / Jonni

komin heim í sveitina

Jæja jæja. Þá erum við loksins komin heim í sveitasæluna á Möðruvöllum. Við viljum byrja á að þakka öllum fyrir kveðjurnar á síðunni. Það er óhætt að segja að síðustu dagar hafi verið frábærir. Þetta ævintýri byrjaði á mánudaginn 20.nóvember. Þá fékk Jonni hringingu frá Boggu sinni um að hún væri á leiðinni í keistara NÚNA!!. Ekki var hægt að bíða lengur með þetta svo að það verð ljóst að ég myndi ekki verða viðstaddur. Pínu svekkjandi því við vorum búin að vinna hörðum höndum að því að ég myndi ná heim í tæka tíð. En samt þá var staðan orðin þannig að ekki var hægt að bíða lengur, enda Bogga orðin eiginlega bara mjög veik, og litli prinsinn fékk víst ekki alveg nóg að borða þarna í restina. Svo að úr varð að amma Pálina mætti og hjálpaði Boggu í gegnum þetta.

            Sjálfur keisarinn gékk mjög vel og kom litli prinsinn í heiminn rétt fyrir 10 um morguninn(símtalið milli okkar hjóna var kl 9). Svo að ég var sem sagt staddur í check-in í París. Ekki ætla ég að lýsa því hvernig tifinningin var að fá að heyra þær fréttir í síma að elsku litli drengurinn væri fæddur, en ef þið þekkið fólk sem var  að ferðast til Íslands í þessu flugi, þá getið þið bjallað í það... ÞAÐ FÓR EKKI FRAMHJÁ NEINUM að eitthvað væri í gangi hjá þessum skrítna íslending..

            Á Íslandi á þessum tíma voru þær mættar upp á sjúkrahús Billa, Alda og Sigga amma, og fengu þær að hitta prinsinn nokkra mínútna gamlan. Maggi afi kom svo líka og fékk að sjá afadrenginn.Okkur skildist að þær stöllur Billa og Alda hafi skilið jafnar í grátkeppninni miklu..... (tilfinningaríkar þessar frænkur..)

litli maðurinn þurfti svo að vera á barnadeildinni fyrst um sinn, því að hann var eðlilega full lítill og horaður, og þurfti að fylgjast með að hann fengi nóg að borða. Hann kom svo til mömmu sinnar (og pabba, sem fékk að gista alla 10 dagana við hliðina á boggu á sjúkrahúsinu) á 3. degi. Sigga frænka kom einmit norður þennan dag sem að hann hann fékk að fara til okkar svo að við þrjú skiptumst um að knúsa hann fyrst um sinn. Við vorum svo í góðu yfirlæti á fæðingadeildinni þangað til í gær fimmtudag, en þá voru þau útskrifuð, prinsinn því hann var svo duglegur að borða og mamman því hún var búin að ná að hvíla sig og farin að hressast. Samt er Bogga nú ekki alveg búin að jafna sig á háum blóðþrýstingi, og þarf að fara voða varlega fyrst um sinn.

Á þessum tíma sem við höfum verið á sjúkrahúsinu höfum við fengið fullt af gestum og gjöfum og þökkum við kærlega fyrir þær.

Núna sem sagt erum við komin á Möðruvelli, þar sem amma Pálína og afi Bjarni hafa tekið voða vel á móti okkur og var sko búið að gera allt klárt. Hérna verðum við og líður voða vel og hlökkum til að takast á við nýjar áskoranir, litli drengurinn virðist vera líkari mömmunni með það að hann er voða rólegur og góður og ekki hávær eins og sumir.. telst það vera MIKILL kostur.

. Verið er að vinna í barnalandssíðu, menn voru ekkert ready með það. látum vita  þegar hún verður klár.

Setjum svo inn myndir seinna í dag.

 

 



segjum þetta gott í bili kveðja Bogga Jonni og litli stúfur


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 21:57:39 / Jonni

Litli Prins Jónatansson

Jæja, þá er litli prinsinn okkar kominn í heiminn örlítið á undan áætlun. Hann var tekinn með keisara mánudagsmorguninn 20. nóvember og gekk það bara allt saman vel þrátt fyrir að pabbinn hafi verið staddur í París á heimleið og fékk því fréttirnar á flugvellinum. En amma Pálína stóð sig vel í hans hlutverki.
Drengurinn var frekar lítill og mjór, 8.5 mörk, 2150 gr og 46 cm langur en hann er svo ótrúlega duglegur að hann plummar sig orðið alveg mjög vel. Hann þurfti að vera fyrstu nóttina í hitakassa uppá Barnadeild því hann var ekki alveg að ná að halda á sér hita sjálfur af því hann er svo mjór, en hann er allur að koma til því hann er svo duglegur strákur og drekkur svo vel. Hann er því kominn inná stofu til foreldra sinna sem eru auðvitað alveg dolfallin yfir litla gullmolanum sínum. Okkur heilsast því öllum vel og erum auðvitað alveg í skýjunum:D
Látum fylgja með nokkrar myndir af kappanum,
Kveðja litla fjölskyldan

Fleiri myndir eru svo hér til vinstri á síðunni undir litli prins...


» 43 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 13:29:35 / Jonni

touristinn eða tour de france

Smá fréttir héðan... Byrjum á leiðindunum. Þessi meiðsli mín eru því miður ekki nógu góð, og fara versandi. Ég er sem sagt með “eitthvað” bólgur eða eitthvað í og við lífbeinið, sem svo leiðir niður í nárann vinstra megin. Nú er það þannig að ég get bara ekkert æft að viti, og hjóla ég bara núna og horfi á æfingar..kalla frakkarnir í liðinu mig tourist.... finnst ég greinilega bara vera hérna í fríi og æfi ekkert.... Farinn að skilja Heimi kallinn alveg ágætlega,, og ég bara búinn að vera utan æfinga núna í rúma viku. Ekki hálft tímabil eins og Dj´inn.

Einn gaur í liðinu var með samskonar meiðsli í fyrra, og endaði hann í aðgerð og var frá í um 7 mánuði!!!! L. Já svo að ég krosslegg fingurna og vona að það fari nú ekki svo illa. En það góða við það slæma er að nú fæ ég nánast pottþétt(aldrei þó öruggt!!)  afar gott “barneigna/jólafrí” því að ég á að reyna að spila næstu þrjá leiki, þrátt fyrir meiðslin, og svo fæ ég að fara heim 2. des og á að reyna að hvíla og koma svo ferskur til baka 3 JANÚAR!!! Já takk fyrir takk mánaðarfrí. Svo að ég er nú bara nokkuð ferskur, ekki langt í að ég fari heim maður. Bogga er bara nokkuð hress, þrýstingurinn þó ennþá of hár, en er undir góðu eftirliti heima, og óhætt að segja að við sjáum ekki eftir því að hún hafi farið heim. Ekki alveg að sjá hvernig þetta hefði allt gengið, ef hún hefði verið hér síðustu vikurnar í meðgöngunni.

Annars þá vorum við að fara yfir nýtt leikkerfi á æfingu áðan. Ég reyndar horfði bara á, en alla vegana., fyrirliðinn(serbinn) ákvað að skíra það “HELVÍTIS” já er ekki að grínast, honum fannst það svo fyndið, enda alltaf að segja það, og fleiri íslensk orð, að nú spilum við þegar við erum einum manni fleiri leikkerfið HELVÍTIS. Þetta þyrfti sérhver maður að sjá(eða heyra) þegar serbinn, eða rúmeninn eða þá frakkarnir góð minn góður kalla þetta... ég græt úr hlátri í hvert sinn.

 

 



Annars þá er eftir hjá mér þrír útileikir áður en ég kem heim. Fyrsti í Dijon (4 timar með lest), næsti í Paris (5 tímar með lest) og svo í Bordaux, (10 tímar með rútu), svo að það er óhætt að ég eigi eftir að vera á ferðinni á næstunni!!!

 

 



Jæja segjum þetta gott í bili... JÞM.

 

 




» 15 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 17:44:39 / Jonni

flottir

FLOTTIR AKUREYRI

Eruð þið ekki að grínast hvað ég var spenntur að horfa á beina lýsingu á netinu......

nágrannarnir hjá mér hljóta að halda að ég sé geðveikur.. því ég var svo glaður þegar Goran skoraði úr vítinu....EKKI KLIKKAR HANN OFT undir pressu þessi gaur... margt má segja um hann Goran vin minn en hann er samt töffari!!! Til hamingju strákar.. og mikið held ég að Hreddinn hafi hjálpað til á línunni í lokin!!!!!!!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 16:58:35 / Jonni

Einn í viðbót!!

Jú góðan daginn góðir hálsar. Jæja við náðum enn einum sigrinum i gærkvöldi þegar við tókum á móti Cesson. Úr  varð hörkuleikur, eins og menn höfðu búist við. Þessir gaurar voru frekar flottir spiluðu til að mynda maður á mann vörn, í hvert skipti sem við lentum einum færri. Svo að þetta var mikill hasar. Við unnum með tveimur í hörkuleik. Ég var í mjög mjög skrítnu hlutverki í þessum leik, óhætt að segja það. Við fengum tvö víti í leiknum sem ég skoraði úr, auk þess að ná að setja 3 til viðbótar, klikkaði þó einu,,fokk ..en þó nokkuð sáttur, !! Það var þó frekar skrítið hvað ég spilaði lítið af mér fannst. Ég er þó reyndar að DREPAST í klofinu.. svo að mörgu leiti þá var það ágætt að ég spilaði lítið. Ég spilaði síðustu 13 mínúturnar í fyrri hálfleik, gekk vel, og hélt að ég myndi byrja seinni.. nei nei, ég sat allan tímann þangað til að c.a 3 mínútur voru eftir, og við komnir í smá klandur, þeir spilandi maður og mann vörn, svo hann henti mér inn á!! Mjög gott fyrir meiðslin mín að fara íssssskaldur inn á, en alla vegana þá lönduðum við sigri..Þetta þýðir að við erum komnir í góðu stöðu efstir. Eftir leik var okkur svo boðið út að borða og (drekka J) og nýttu menn sér það misvel þ.e að það væri frítt að drekka. Ég var rólegur, en við förum svo nokkrir eftir matinn á Casino og förum þar í rúlettu.. ERTU EKKI GRÍNAST hvað það var gaman. Rúmeninn  vann c.a 30.000 kall. Serbinn tapaði held ég 50.000 kall (án gríns) en ég og aðstoðarþjálfarinn vorum bara rólegir og vorum meira í að spila upp á MINNI fjárhæðir, svo að ég varð hvorki ríkur, né á kúpunni eftir þetta kvöld.. í Dag svo í hádeginu, fórum við “útlendingarnir” fyndið að kalla sig útlending, saman að borða á flottu veitingahúsi.. tek það fram að við sátum úti við höfnina, ég á gallabuxum og bol, því það voru 23 gráður og sól í dag. ÓTRÚLEGT  að það sé 12. nóvember,,. En þetta er klárlega einn af kostum þess að vera hérna. Þ.e veðrið. Annars er Ísland miklu miklu miklu betra!!! Svo ég er nú bara mjög hress, gaman að fara að gera eitthvað annað en fara á æfingu og í tölvuna... En núna ætla ég að horfa á beina lýsingu hjá Akureyri og Stjörnunni...

 

Yfir og út JÞM


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 13:14:52 / Jonni

everybody needs good neighb......

Góðan daginn allan daginn. Jæja héðan er allt lítið að frétta, menn í afslöppun og æfing í kvöld og leikur á morgun. Daginn fyrir leik eru svo allaf videofundir og þá þarf ég að einbeita mér alveg sérstaklega. Að hverju? Ekki að hlusta á þjálfarann heldur að sofna ekki!! Þessir fundir fara fram í dimmu dimmu herbergi og hef ég þurft að klípa mig reglulega til að sofa ekki. Að horfa á handbolta og hlusta á frönsku fer svona greinilega illa í mig að ég þarf að hafa mig allan við.!! Annars ætti ég að vera úthvíldur, því ég hef lítið verið að æfa, og svo var það best að í gær var smá MISSKILNGUR milli míns og þjálfarans, og endaði það þannig að ég einn mætti ekki á æfingu í gærmorgun, heldur lullaði bara vænum blundi heima. Þjálfarinn reyndar tók það á sig, og viðurkenndi  að hafa gefið mér vitlausar upplýsingar.. En það er sem sagt toppleikur, og mikið undir. Ég fékk svo grænt ljós á að fara heim 2. des, og koma svo ekki til baka fyrr en 3. jan!!! En það stóð nú stutt yfir, og þarf ég núna eins og staðan er í dag,að mæta aftur 14. des, spila EINN LEIK. Svo fá allir jólafrí 23. des til 3 janúar. Svo að maður verður nokkuð á ferðinni í Desember!!!

Já dálítið skrítið. Sko ég spila leik 1. des, fer heim, fæ að sleppa einum leik þann 9. en þarf svo að koma til baka og spila þann 16. des. Af hverju ég fæ ekki bara frí í þessum tveimur leikjum skil ég ekki, en get svo sem gert lítið í því.

Annars þá get ég nú ekki beðið eftir að koma heim og taka á móti litla krílinu okkar. Bogga mín er nú orðin eitthvað voða þreytt, var að tala um að fá sér “snúningslak” enda enginn sem getur snúið henni fyrst að kallinn hennar lætur sig vanta!!! En vá vá hvað það verður nú gott að koma heim og knúsa kúluna og konuna!!!! Jæja nóg í bili..

 

 



p.s rétt upp hönd þeir sem finnst gott að vakna nánast alla morgna við einhver fokking vélsögshljóð, eða eitthvað svoleiðis!!! Ég er að verða geðveikur á því að mínir “elskulegu” nágrannar þurfa að vakna 7:00 alla morgna og snyrta hjá sér runnana, laga, mótorinn sinn á bátnunum sínum eða eitthvað álíka....

 

 



Segi það og meina það.. Frakkar eru fífl......(flestir)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 21:30:18 / Jonni

8 sigrar.. eitt tap.. og jonni magg illt i mallanum...

Jæja jæja jæja. Þá verður maður að láta heyra frá sér!! Frá því að síðast var skrifað má segja að maður hafi verið í fýlu, (eða andlegri íhugun,, finna sjálfan sig, eyða tíma með sjálfum sér,, (ekki margir aðrir til að eyða tíma með....)eða hvað þetta nú heitir.. en ég er búinn að finna mig svo að allir verða nú glaður okei) svo já Árni ég skal þurrka tárin og gera eitthvað að viti. . Við sem sagt fórum í “utanlands”ferð um síðustu helgi. Lentum í Basel í Sviss og keyrðum þaðan “aftur inn í Frakkland” Alda systir skildi ekki hvaða lið í frönsku deildinni væri með heimavöll í Sviss (svo gáfuð hún systir mín) svo til að forðast allan misskilning þá sem sagt spiluðum við í Frakklandi. Ég er því miður MEIDDUR þessa dagana, og ekki hefur það verið skemmtilegt. Þessi voða flotta sjúkraþjálfunarstöð, getur læknað menn eins og Cisse og Pires, en hún er ekki nógu góð fyrir alvöru stjörnur eins og Jonna Magg!! Nú er það þannig að sjúkraþjálfarar liðsins og læknir liðsins eru hundfúlir út í þessa sjúkraþjálfun, og vilja meina að “teygjubúðirnar” sem ég hef verið í skili engu og þetta sé bara bull. Vissi það að teygjur eru af hinu illa  Ég lenti svo á milli í þessu stríði, og reyndi að útskýra fyrir öllum hvar mér er illt, en held satt best að segja að þeir viti það ekki ennþá!!! En ég sem sagt æfði lítið í síðustu viku, fyrir þennan leik, en spilaði þó eitthvað í honum. Ég tók gömlu góðu íslensku hörkuna á þetta, var að drepast en lét á engu bera. Það kostaði mig það að ég hef ekki verið verri í þessum meiðslum, og eru þau núna farin að leita niður í nára. Við unnum leikinn sem sagt nokkuð örugglega, og skoraði ég úr báðum mínum vítum, og er nú orðin vítaskytta liðsins...hahahh kominn með nokkur örugg mörk í leik. Annars hafði ég mig lítið í frammi, og fékk lítinn spiltíma. Út af meiðslunum sagði þjálfarinn,,, en ég ekki svo viss.. hinir voru nú bara góðir svo ekkert við því að segja... Við erum sem sagt núna “efstir” þ.a búnir að tapa fæstum stigum. Á laugardaginn er svo hörkuleikur, við Cesson, en þeir eru bara einu stigi á eftir okkur. Ég stefni á að spila, en má ekkert æfa fyrr en á föstudaginn!!! Ekki það skemmtilegasta, en þó fínt að ég verð mjög líklega með. Annars þó fékk ég það loksins staðfest hjá liðinu að ég má fara heim, og verða viðstaddur fæðinguna, og reikna ég með að koma heim 4. des. Úff óhætt að segja að ég sé farinn að hlakka til. Bogga mín er hress, hefur þó verið með einhvern háþrýsting en læknarnir fullvissa okkur um að allt sé í góðu. Annars þá hefur nú loksins kólnað hérna, og er hitinn yfir nóttina um 8 gráður, en fer þó yfir daginn í um 18-19 gráður. Svo ekki getur maður kvartað yfir veðrinu. Annars þá hef ég verið að með íslenskukennslu hér í St. Rap um nokkurt skeið, þau orð sem rúmeninn, slóveninn og Serbinn hafa lært eru ekki beint úr bíblíunni, en þó nokkuð góð, og fyndið að heyra þá tala Íslensku.. en það skal tekið fram að þeir vildi bara læra “ljót” orð, svo ekki halda að ég hafi prangað þeim upp á þau..... þau eru eftirfarandi: hoppaði í rass...g .á þér, helvítis, tus....og svo kunna þér að segja Akureyri og hafnafjördur og reykjavík og svo syngja þér brot úr því fræga fylleríslagi Rangur maður..(var með það í i podinum mínum,,ég veit ekki það besta.. sorrý og syngja öllum stundum AF HVERJU GET ÉG EKKI LIFAÐ EÐLILEGU LÍFI....eða frekar einhvern veginn svona agurrru gé ikki ikki lilllla ellli legu lifi. Mjög fyndið þegar rúminn segir við mig “John helvítis Christjan” þegar þjálfarinn er með einhverja stæla!!! Já svo að það má segja að þeir hafi lært jafnmikið í íslensku og ég í frönsku á þessum tæpum 4 mánuðum hér í Frakklandinu góða. Hahahah Ekki er ég góður í frönskunni maður....En þó skil smá, þetta er nú ekki alslæmt.. En svona er nú staðan, ég bara nokkuð hress, liðið á sigurbraut, ég jafnslappur í frönskunni, meiddur, en samt leikfær, svo að lífið er bara allt allt í lagi hérna í France.. og mataræðið.... snilld, ekki verið að flækja þá hérna megin... brauð, pasta, kjúlli og PRINSKEX.. verður ekki betra.... Lofa að skrifa fljótlega aftur......Jonni prins Magg.

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 22:49:35 / Jonni

sjöundi sigurinn!!

        Hæ hæ. Er ekki í stuði þessa dagana að skrifa mikið. En læt þá menn vita um leikina. Spilum við Nantes í kvöld á heimavelli. Hörkuleikur, áttum tvö á hálfleik, en sigruðum svo að lokum(erfitt að sigra á öðrum tíma en í lokin), nokkuð örugglega 31-25. Spilaði mjög vel, og reddaði þessum fokking leik, (já maður verður bara aða taka L&ann á þetta) vona að þjálfarinn fari að ná því að það er betra að nota mann eitthvað að viti, ekki bara til að hvíla þessar stjörnur, sem geta ekkert, og eru latir. Hefðum unnið mun stærra ef þessar stjörnur myndi nenna að t.d hlaupa í vörn, en það gera þeir ekki.... Spilaði 40 mínútur, í vörn og sókn. Nú er ég búinn að finna síðu sem er með alla tölfræði á hreinu. Svo að ég var með samkvæmt henni 3/5 skot 1/1 úr vítum og 3 stoddara. Á svo leik á útivelli á sunnudaginn, og fer í voða ferðalag. Fljúgum til Sviss,(já landið) og keyrum svo þaðan eitthvað í rassgat. Förum á laugardegi og komum heim seint á sunnudag FRÁBÆRT. ELSKA ÞESSI FERÐALÖG (ekki). Það er hrikalega fúlt að vera einn og sakna Boggu minnar hrikalega. Veit að maður á að bera sig vel og allt það, en þetta er MÍN SÍÐA svo ég skrifa það sem mig langar. Fór reyndar í klippingu um daginn, og lít núna út eins og þýskur (bluemovie)leikari.....vantar bara mottuna(er að spá í að safna!!en SO WHAT... Segum þetta gott.

» 9 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 13:20:26 / Jonni

Frábær ferð!!! :)

Sumar ferðir hafa oft verið sagðir til fjár, frægðar, eða frama. Ekki allar, og er óhætt að segja að þessi ferð mín til Borg Ástarinnar hafi falli í hóp þess síðarnefnda.. En byrjum á byrjuninni. Á dagskránni var sem sagt leikur í gærkvöld(laugardagskvöldið) og var lagt af stað kl 8. um  morguninn með lest. Það voru rúmir 4 tímar. Við tók þessi “hefbundna” rútína, fyrir leik, farið á hótel, borðað, lagt sig og borðað aftur, göngutúr, og svo leikurinn náttla. Fyrir mér er þetta c.a svona: Lesa í bókinni minni, hangsa, hlusta á I-podinn- hangsa, lesa, sofa, borða og skí..(okei verð að bæta inn smá hérna.. okei á Íslandi, þá var það einn stærsti hluti af rútínunni hjá held ég öllum leikmönnum að fara að gera númer 2. áður en maður fer að spila... en hér, hvað get ég sagt, það eru ekki einu sinni klósett í keppnishúsunum, bara pissuskálar, svo if you need to go,,, YOU CAN´T!!! Þú verður að vera búinn að gera allt “klárt” löngu löngu fyrir leik. Ekki gott mál L

.En svo reyni ég nú líka að tjátta aðeins  við vini mína í liðinu... En okei það er bara svona að vera útlendingur, maður er út úr og verður að vera duglegur að “finna” sér eitthvað að gera. Suduko er orðinn minn vinur og er ég viss um að greindarvísitalan mín hefur hækkað til muna...(ekki reyna þetta þið sem hugsuðum.... mátti við því J) við það að eiga við þessar þrautir... Reyndar er nú alveg nógu mikil þraut, það að reyna að vera inn í umræðinni hérna, svo af hverju ég er að leggja meira á heilann en það,  skil ég nú ekki...

             En jæja, þá skal ég koma að því af hverju þessi ferð var ekki til FjárS frama eða frægðar..Leikurinn hófst og honum lauk og ég spilaði í heilar 3 sekúndur... Já held að þetta hljóti að vera minnsti spiltími sem leikmaður hefur fengið í sögu handboltans.. Sko ef maður spilar ekki, þá er ekki um spiltíma að ræða, en ég klárlega kom inn á og SVO..........           Ég sem sagt var að labba mér inn á völlinn þegar 10.mínútur  voru liðnar af honum og staðan 6-4 fyrir okkur, þá varð RAFMANGSLAUST í húsinu. Já og skipti engum togum um það, að ekki tókst starfsMANNINUM(ekki mönnunum) að koma ljósunum á aftur, það var sem sagt einn gaur að vinna þarna í skemmunni sem leikurinn fór frá í og réði ekki neitt við neitt. Eftir um 30 mínútna bið eftir niðurstöðu, flautuðu dómararnir leikinn af, og verður hann spilaður aftur seinna, og staðan bara 0-0. Best að við þetta allt er það að á þessum 10 mínútnum tókst einum úr mínu liði að fá  beint rautt spjald, svo ENGINN veit núna hvort hann verður í banni eða ekki í næsta leik.. Já stórfurðulegt.. Ótrúlegt að niðurstaðan þegar svona kemur upp sé nýr leikur.. fínt ef maður er vel undir á heimavelli(líkt og við í síðasta leik) þá bara kippir einhver starfsmaður í einn vír og .... nýr leikur maður.. já En svona var þetta sem sagt. Við gistum svo þarna í úthverfi París(fékk ekki einu sinni að sjá París) og fórum svo heim með lestinni í morgun.

            Mér fannst best að ég hitti gaur þarna sem ég þekki. Eftir leik var kallað á mig, var það enginn annar en Bavú (litli franski sem spilaði með Val í fyrra) og heilsaði hann mér svona líka. Spjölluðum við saman og var hann hinn almennasti og sagði mér að ef ég hefði eitthvað PROBLEM þá myndi ég bara tala við hann. Flottur Bavú. Svo nú á ég EINN franskan vin. Ekki slæmt það...

 

 



JÆJA er þetta ekki orðið nóg, leikur á miðvikudag KANNSKI maður veit greinilega aldrei, svo aftur útileikur á sunnudag.  Þá er fljúgum við til Sviss, og keyrum þaðan á áfangastað. Svo allir vinir mínir í Sviss, takið nú vel á móti mér.

 

 



Kveðja JÞM.


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 20:13:58 / Jonni

af öllu og engu

Best að láta heyra aðeins frá sér!! Hér í St. Rap er veðrið orðið eins og það á að vera. Sól og hiti. Rigningin sem angraði okkur feðga í síðustu viku er á bak og burt, svo að það er fínt. Það hefur gengið bara nokkuð vel þótt ég segi sjálfur frá að vera einn. Skyndilega hefur maður í nógu að snúast.. Það að þvo af íþróttamanni er ekkert grín!! Sjálfur hef ég ekki gert mikið af því í gegnum tíðina(já já ég veit karlmenn geta ekkert) Boggan mín var náttla í fullu starfi hér í France að þvo og þurrka, og ganga frá og elda. Ég mætti bara alltaf galvaskur og naut lífsins. Núna fæ ég að kynnast þessu aðeins og er það bara fínt. Gerði alsherjarhreingerningu eftir að golfgengið fór (4 karlmenn í lítilli íbúð, blautir og skítugir eftir golf.... þið getið ímyndað ykkur). Svo núna er bara fínt hjá mér. Þjálfarinn er að fríka út þessa dagana... já það mætti halda að liðið hafi tapað 10 leikjum í röð, slík er krísan. Hann bætti við æfingum, tók af okkur nudddaginn góða, og er bara voða pist. Já ég vissi að hann væri undir pressu að koma liðinu upp, en common!! svo hann ætlar ekki að sofa á verðinum.. Gaurarnir í liðinu eru alveg brjálaðir yfir þessu, þ.e æfingarálaginu.. en sjálfum er mér alveg sama. Hef ekkert betra að gera en að mæta á æfingar. Bara svo að menn fái smá nasaþef af æfingarálaginu þá er vikan hjá mér búin að vera eftirfarandi. Mánudagur, fór í lyftingaræfingu,(í sjúkraþjálfuninni)Svo teygjuæfinguna frægu eftir hádegi, svo á handboltaæfingu um kvöldið. Þriðjudagur: lyftingaræfing, svo handboltaæfing, svo aftur handboltaæfing um kvöldið. Miðvikudagur: tvær handboltaæfingar, morgun og kvöld. Fimmtudagur: lyftingaræfing-teygjuæfing- handboltaæfing. Morgun föstudag: morgunæfing,og svo kvöldæfing. SVO ER LEIKUR Á LAUGARDAG, í París, og förum við snemma um morguninn með lest, spilum um kvöldið og förum heim morguninn eftir, gaman verður að fara til Parísar, á þó ekki von á að við förum á margar skoðunarferðir í þetta skipti þó.!!! Já svona er sem sagt vikan...Í vikunni þar á eftir eru svo tveir leikir, heima á miðvikudaginn svo útileikur á sunnudag...

            Veit svo sem ekki af hverju ég er að segja frá þessu hérna, mönnum sennilega alveg sama..Ég hef voða lítið að segja svo sem, svo þetta má alveg fara.

           

            Jæja ég læt heyra frá mér aftur, þegar ég hef eitthvað skemmtilegt að segja.. til ykkar allra..... bæ bæ, hafið það gott.

 

 




» 6 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 06:33:42 / Jonni

Yfirstaðið

Jæja þá er þetta búið!! Já heimsóknin hjá þeim feðgum er nú yfirstaðin og þeir félagar lagðir af stað heim. Á þessari rúmri viku erum við feðgar búnir að hafa það afar gott, og því óhætt að segja að maður finni fyrir ákveðinni tóma tilfinningu núna. Golf var aðal málið í þessari ferð, alla vegnana hjá þeim bræðrum. Reyndar þá hittu þeir á frekar fúla viku hvað varðar veður, en þó svo að það hafi bara rignt tvo daga, þá var skýjað og rakt, svo að gamli pabbinn minn fékk ekki að vera á gólfbíl. Það þýddi að hann spilaði ekki eins mikið golf og hinir, enda erfitt fyrir hnéin að labba mikið. Þeir bræður hins vegar náði einum hring eða svo (ATH SEX 18 holugolfhringir á 5 dögum!!!). Þeir sáu svo hjá mér leik á laugardaginn, en þar gerði lið mitt verulega í brækurnar og töpuðum við með 9 mörkum á heimavelli!! Já svo nú er sýnist mér “góðærið” búið hjá liðinu og þjálfarinn alveg crasy og er búinn að herða þvílíkt æfingar og engin miskunn. Sjálfur spilaði ég nokkuð vel (að sögðu þeirra feðga) skorðaði 4 mörk, og er vonandi kominn minn tími á 7 metra línuna, enda hafa þessir gaurar skitið á sig þar, þar sem af er tímabili.

            Annars þá held ég að Frakkland sé ekki land fyrir þá  bræður, ef að mönnum finnst ég trekktur og þarf að láta hlutina gerast hratt... já þá veit ég ekki hvað þeir bræður eru.. engin sjoppa eftir kl 7, enginn krókeyrarhamborgari og það sem mest máli skipti ekki SÝN. Sjitt hvað þeir eru háðir TV inu maður. Þeir ráku sig svo vel á hvað varðar tungumálavandamálið, og það að panta “coka”eða eins og Addi bró kallaði það kúk, varð að stór vandamáli.

            Þar sem að það var skýjað, þá gerðum við tilraun til að fara í sund hér í  St. Rap. Ég hafði aldrei reynt það áður, enda hingað til látið ströndina nægja. En nei nei, við mættum galvaskir og borguðum okkur inn. Það tók c.a 30 mín. Fyrst sakaði hún Hjötta um að hafa ekki borgað,, sá var ekki sáttur og lét hana heyra það á góðri íslensku. Svo var komið af því að klæða sig úr, komnir á sprellann föttuðum við að við þurftum pening á skápana (eins og alls staðar) þurfti ég að fara til  baka og biðja um pening hjá kellunni í afgreiðslunni. Hún var sem sagt ekkert að láta okkur hafa það af fyrra bragði, nei nei. Svo fórum við áleiðis í sturturnar,, nota bene á sprellunum eins og lög gera ráð fyrir... haldiði ekki að við hefðum bara mætt inn í sameiginlegar sturtur maður, og sundlaugin með fullt af fólki við hliðina!!! Vorum við ekki lengi að klæða okkur í, enda ekki fyrir börn og konur að sjá st........ Jæja nóg um það, við í skýlurnar (stuttbuxurnar) og sturtuðum okkur. Ætluðum  við svo út í.............. nei og aftur nei, við vorum reknir upp úr, því við vorum ekki í SUNDSKÝLUM, nei það var sko skylda að vera í svona alvöru speedoskýlum!!! Já ótrúlegt, sjáið þið ekki MJ fyrir ykkur á á pínulítilli mini speedoskýlu!!!

            Svo við þurfum að hunskast upp úr, Hjörtur(sem er meiri skaphundur en flestir) var ekki sáttur og ákvað þess vegna að sýna þeim á sér æðri endann í orðsins fyllstu merkingu, og dreif sig úr STUTTbuxunum og fór þannig í sturtu!!! Flottir Brósi. Já svona gekk sem sagt þessi sundferð,,, við fórum EKKI aftur.

            Að öðru leiti þá var bara haft það gott, fórum út að borða all oft, og ber held ég Asian buffet þess ekki bætur að hafa fengið okkur í heimsókn. Við Boggu og Bjarni E. fórum þangað líka, og óhætt að segja að við höfum ekki borðar asíska fólkið út á gaddinn, en það var öfugt farið með seinna skiptið. MJ og bræður held ég að hafi sett asískan efnahag á hausinn,,, svo nú þurfa þeir sennilega að rækta nokkur grjón í viðbót, til að standa undir kostnaðinum af heimsókninni okkar.

            NÚ sit ég hérna einn og bíð eftir að æfing hefjist. Bogga mín heima á Íslandi, í góðum höndum eins og ég vissi, svo að maður kvartar ekki. Ég tel því bara niður dagana, þangað til að ég kem heim, og litla krílið kemur í heiminn.

            Ég ætla svo að vera duglegur að skrifa hér inn, þó svo að núna sé nú minna um að skrifa, en það er aldrei að vita hvað Jonni magg einn í útlöndum lendir í og sé ég til hvort ég leyfi ykkur að heyra eitthvað frá því, en bless í bili,

 

 



Jonni Magg.


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 16:02:00 / Jonni

Skín einhvern tímann sól hér eða???

blautt, smábirta, mikið golf, leikur í kvöld, Látum heyra frá okkur mjög fljótlega. Eitt er þó víst. Frá mörgu verður að segja!!!

kveðja frá St. Rap. Jonni og "whater"golfgengið!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 17:54:28 / Jonni

Allt að gerast!!

Halló halló. Bara örstutt héðan. Golfgengið er sennilega í flugvélinni núna á leiðinni til Nice. Ég búinn að fá 10 manna bíl til að sækja þá, dugar ekkert minna enda stórmenni á ferð!! Rigningin er ekki ennþá mætt á svæðin og krosslegg ég fingurna og vona það besta. Þó heyrði í útvarpinu pínu fyndið í gærmorgun. Á einni breskri útvarpsstöð sem er hérna (já er þokkalega ánægður með það.. enskan er SVO mikið betri en franskan maður), en allavegana, þá var verið að tala um veðrið næstu daga og sagði kellan í útvarpinu eitthvað á þessa leið “ okei now summer is finally over!! Svo sagði hún að fólkið hér gæti nú ekki kvartað enda búið að vera hér steikjandi hiti í 3 mán. En mér fannst þetta samt svo fyndið enda þeir á leiðinni akkúrart núna, þegar haustið er FINALLY skollið á með rigningu og lækkandi hita!! Já, en við eigum þó eflaust eftir að fara í golf, sama hvernig viðrar, það get ég sagt ykkur. Reyndar þá ætlaði pabbi gamli að slaka eitthvað á á ströndinni,, hann má það alveg fyrir mér, verst að það mun ekki vera nein sól!! Annars þá hefur maður frá litlu að segja, vikan líður áfram, og maður heldur sinni rútínu, eins gott að detta ekki út úr “rútunni” eins og einn góður maður orðaði það forðum, þá gæti maður meitt sig maður!!! (þetta var einka ka-húmor sem fáir skilja... . En æfingarnar ganga bara svona okei, ennþá gengur rólega að skilja hvað þessi fok....(best að skrifa ekki meira ef hann skildi finna slóðina á síðuna!! EKKI) FOKKING þjálfari vill að ég geri!!! Ég passa mig þó að segja bara við hann D´acord (okei) sama hversu pirraður ég verð stundum... En ég er held ég að verða nokkuð góðir í mallanum, greinilegt að 5 klst teygjur á dag, hafa eitthvað að segja. Svo er heimaleikur hjá okkur á laugardaginn. Það verður gaman að spila hann, enda hef ég nokkra áhorfendur á mínu bandi!! Hef það ekki lengra í bili, læt þá heyra frá mér fljótt, og leyfi ykkur að fylgjast með okkur “bakka”feðgum, og segja hvað á okkar daga drífur... Og hei takk fyrir kvittið.. greinilegt að ég er ekki eini “crasy” íslendingurinn sem horfði í Hostel.. Kv. JÞM (Mainson Avec Jardin)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Dagsetning
23. febrúar 2012